Fréttir

Brosbikarinn 2007

Skráningu í Brosbikarinn 2007 er nú lokið. Í karlaflokki verða 6 lið og í kvennaflokki 5 lið. Dregið verður í bikarnum á mánudagBrosbikar karla verða þessi lið í pottinum: KA, ÍS, Stjarnan, Þróttur R., Hrunamenn og HK. Aðeins 1 lið er í 2. deild og því verður það lið dregið fyrst upp úr pottinum og tvö lið sitja hjá í 2. umferð.

Í Brosbikar kvenna verða þessi lið í pottinum: KA, Þróttur R., UMFG, HK og Þróttur N. Aðeins 1 lið er utandeildalið og því verður það lið dregið fyrst upp úr pottinum og þrjú lið sitja hjá og komast beint í undanúrslit.

Leikirnir í 2. umferð munu fara fram í febrúar.

Dregið verður í Brosbikarnum 2007 á skrifstofu BLÍ mánudaginn 15. janúar kl. 17.15. Forsvarsmenn liðanna eru velkomnir til að vera við dráttinn.

Reglugerð fyrir bikarkeppni Blaksambands Íslands
1. gr.
Í 1. umferð keppa lið í 2. deild og utandeildalið og þá eftir landshlutum. Ef einungis eitt lið skráir sig til keppni í landsfjórðungnum þá fer það sjálfkrafa í 2. umferð.

2. gr.
Í 2. umferð koma 1. deildarliðin inn í keppnina og skulu öll liðin sett í einn pott og dregið. Utandeildaliðin og 2. deildarliðin eiga heimaleik í 2. umferð mæti þau 1. deildarliði. Annars á það lið sem á undan er dregið heimaleik. Lið sem flyst sjálfkrafa úr 1. umferð skulu dregin fyrst úr pottinum í 2. umferð.

3. gr.
Stjórn BLÍ ákveður leikstað úrslitaleiks fyrir fyrstu umferð keppninnar.


4. gr.
BLÍ skal sjá um framkvæmd leiksins.


Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning