Blakhreyfing á tímamótum

Sigurður Arnar Ólafsson
Formaður YFN BLÍ

Blakhreyfingin í landinu stendur á tímamótum. Eftir nokkurra ára stöðuga fækkun blakiðkenda í yngstu aldurshópunum hefur tekist að snúa vörn í sókn. Í þessari grein verður leitast við að varpa ljósi á ástæður þess að blak hefur átt í vök að verjast síðustu árin en einnig verður bent á öflug sóknarfæri fyrir þessa frábæru íþrótt og sagt frá nýgerðum samningi við Danska blaksambandið, um þýðingarrétt á kennslu- og markaðsefni um Krakkablak, sem gæti skipt sköpum fyrir enduruppbyggingu íþróttarinnar hér á landi.

Blakíþróttin á Íslandi á uppruna sinn í skólum landsins en þar sleit íþróttin barnsskónum á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar. Íþróttin hentaði vel í litlum íþróttahúsum sem víðast voru út um land á þessum tíma. Síðan stækkuðu húsin og íþróttin fékk samkeppni frá fleiri íþróttum og hefur verið í nokkurri vörn síðustu árin. Það hefur jafnframt háð blakíþróttinni að ekki hefur verið mögulegt að kenna börnum yngri en 10 ára blak þar sem boltar og leikaðferðir hafa ekki hentað yngri krökkum. Einnig hefur ótrúlega einsleit íþróttaumfjöllun um einstakar íþróttagreinar í fjölmiðlum á Íslandi gert íþróttinni erfitt fyrir.

En nú eru bjartari tímar framundan fyrir blakíþróttina, ný lið eru að bætast í hóp eldri og gamalgróinna og iðkendum fjölgar nú ört. Fyrir því eru nokkrar ástæður.

Fyrst er að telja að hannaður hefur verið frábær bolti frá Mikasa sem er léttari og mýkri en venjulegir blakboltar fullorðinna en heldur samt öllum einkennum venjulegs blakbolta. Einnig hafa verið þróaðar nýjar leikaðferðir (Krakkablak “KidsVolley” “MiniVolley”) sem eru sérhannaðar fyrir unga krakka. Þessi nýi bolti og nýjar leikaðferðir gera kleift að byrja að kenna krökkum blak strax við 5-6 ára aldurinn. Þar með stendur blakíþróttin jafnfætis öðrum íþróttagreinum, sem flestar byrja þjálfun krakka á þessum aldri. Nokkur félög eru byrjuð að bjóða upp á blak fyrir 6. flokk (7-9 ára) og gengur vel, m.a. KA, Þróttur Neskaupstað og Ungmennafélagið Glófi á Siglufirði. Um 60 krakkar æfa nú í 6. flokki í þessum félögum.

Annað atriði sem skiptir gríðarlega miklu máli er aðgengi iðkenda og áhugamanna á Íslandi að alþjóðlegu blaki. Breiðband með tugum sjónvarpstöðva frá fjölmörgum löndum er boðið á höfuðborgarsvæðinu og þar er blak reglulega á dagskrá. Stafrænt sjónvarp bíður við sjóndeildarhringinn, gerfihnattadiskar verða sífellt algengari og Internetið opnar aðgengi að hundruðum vefsíðna um blak. BLÍ leita nú leiða til að fá erlent hágæðablak sýnt í íslensku sjónvarpi.

Blakíþróttinni á alþjóðavettvangi vex sífellt fiskur um hrygg. Um 200 milljónir iðkenda stunda blak í heiminum og 218 þjóðir eru aðilar að Alþjóða blaksambandinu sem gerir sambandið að því stærsta í heimi. Sífellt fleiri áhorfendur sækja blakleiki á alþjóðavettvangi og ekki má gleyma gríðarlegum vinsældum “Beach volleyball” um allan heim.

Að lokum má nefna að blakhreyfingin á Íslandi á sterka bakhjarla sem lítið hefur borið á hingað til en verða íþróttinni gríðarlega mikilvægir þegar fram í sækir en það eru fjölmargir blaköldungar (iðkendur eldri en 30 ára) en um 1000 “öldungar” stunda reglulega blak á Íslandi í dag en alls stunda um 2000 manns íþróttina samtals.

Tímamótasamningur við Blaksamband Danmerkur


Blaksambands Íslands hefur nýverið samið við danska blaksamabandið um þýðingarrétt á efni sem nefnt er 'KidsVolley' eða Krakkablak á íslensku. Ákveðið hefur verið að skrifa formlega undir samninginn með viðhöfn í Mosfellsbæ 12. apríl næstkomandi en þá fer einmitt fram úrslitakeppnin í Íslandsmótinu í blaki yngriflokka. Samningurinn við danska blaksambandið er til 3 ára og felur m.a. í sér uppfærslu og þróun á efninu og námskeiðsrétt fyrir 2 fulltrúa BLÍ í Krakkablaki en námskeiðin eru haldin árlega í Danmörku. Einnig ætlar danska blaksambandið að halda þjálfaranámskeið í Krakkablaki á Íslandi og verður fyrsta námskeiðið haldið 12.-13. apríl næstkomandi í Varmárskóla í Mosfellsbæ.

Krakkablak hefur verið í þróun í um 10 ár og á uppruna sinn í Hollandi. Hugmyndin hefur nú dreifst með eldingarhraða um allan heim enda er um að ræða frábæran leik sem hentar nánast öllum krökkum og hefur yfirburði á marga vegu yfir aðra boltaíþróttir. Íþróttin þykir henta sérstaklega vel sem skólaíþrótt en af hverju skildi það nú vera:
· Íþróttin er án árekstra (engin samstuð). Þetta elur af sér góðan anda í íþróttatímum.
· Strákar og stelpur geta spilað saman í liði eða á móti hvort öðru á jafnréttisgrundvelli án vandkvæða.
· Hver einstaklingur fær að njóta sýn, ekki bara þeir sem eru fljótastir eða strerkastir, allir taka jafnan þátt í leiknum, allir geta orðið hetjur síns liðs.
· Hægt er að nota badmintonvelli til að spila á. Átta – tíu krakkar spila í einu á hverjum velli sem þýðir frábæra nýtingu á íþróttasölum í skólum.
· Til að spila blak þarf 2-3 einstaklinga sem saman vinna að einu verkefni, að koma boltanum í gólf andstæðingsins. þar af leiðandi er ekki hægt að spila íþróttina sem “sólóisti” eða einspilari. Að sjálfsögðu þarf svo 4 eða 6 samhæfða spilara sem vinna saman til að vinna leik. Þetta grundvallareðli íþróttarinnar kennir krökkum að vinna saman sem hópur, nokkuð sem seinna á ævinni nýtist krökkunum bæði í skólastarfi og atvinnulífi.

Krakkablak (KidsVolley) efni danska blaksambandsins skiptist í eftirfarandi þætti:
· “Kids Volley í Klubben”. Alhliða kennslubók fyrir íþróttafélög 56 síður A4.
· “Kids Volley í Skolen”. Alhliða kennslubók fyrir íþróttafélög 30 síður A4. (stytt útgáfa af “Kids Volley í Klubben”)
· “Rekruttering”. Ætlað fyrir félög. “Hvernig á að fá krakka til að æfa blak?”
· Plaköt A3. Neðst á plakatinu er textareitur sem nota skal til að prenta ýmsar upplýsingar á t.d. um mót.
· Kids Volley bæklingur A5. Stutt lýsing á krakkablaki og helstu reglum. Það er gat á öllum bæklingum sem hægt er að nota til að þræða bæklingana upp á “spjót” sem hægt er að festa við A3 plakatið.
· Kids Volley bæklingur. Lítill A6 bæklingur um krakkablak tilvalin til að dreifa í skóla í miklu magni.
· “Kids Volley regler”. A6 bæklingur með upplýsingum um krakkablak leikreglur. Hentar vel til dreifingar í skólum til kennara, til þjálfara, foreldra og á mótum.
· Kids Volley myndband. Á 10 mínútum er farið yfir öll 0-5 stig krakkablaks, reglur kenndar og sýnt hvernig Krakkablak er spilað.

Það er trú mín að með útgáfu á efni danska blaksambandsins og dreifingu þess inn í skóla á Íslandi muni takast að efla blakíþróttina til muna hér á landi. Eflingu íþróttarinnar í skólum landsins þarf síðan að fylgja eftir með skólamótum og þar kemur til kasta félaganna að sjá um framkvæmd mótanna í samvinnu við íþróttakennara. Efling blaksins í skólunum mun síðan skila sér inn í félögin í landinu, það hefur sagan sýnt.



Formaður yngriflokkanefndar Blaksambands Íslands

Sigurður Arnar Ólafsson

 

Höfundur: Stefna ehf - Uppfært: 23.01.2007

Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning